Meðferðin gengur út á að meðhöndla hrukkur í andliti og vinna gegn öldrunareinkennum og þreytulegu útliti.
Botulinum toxin bindst við taugaenda og hamlar losun á taugaboðefni, á þann hátt hindrar það vöðvasamdrætti í þeim vöðva eða hluta vöðva sem er meðhöndlaður. Virkni botulinum toxin er tímabundið en endurtaka þarf meðferðina til að viðhalda árangri á 3 til 6 mánuða fresti.
Botolinum toxin er vöðvaslakandi efni sem er sprautað í vöðva með mjög fíngerðri nál. Meðferðin er áhættulítil en lítið mar getur þó stundum myndast við stungustað. Meðferðin er mjög svo einstaklingsbundin og fer eftir óskum hvers og eins. Sjálf meðferðin tekur um 15 mínútur.
Fyrst hittir þú lýtalækni sem skoðar þig og metur hvaða meðferð hentar þér best. Þú færð upplýsingar um kosti og galla ásamt því hvaða árangurs þú getur vænst af meðferðinni svo og um mögulega áhættuþætti og fylgikvilla. Áður en meðferð er hafin er svæðið sótthreinsað. Stundum er borið staðdeyfandi krem á svæðið 20 mínútum fyrir meðferð. Fylliefnið inniheldur deyfilyf, en það minnkar óþægindin og því er sprautað með örþunnri nál á þau svæði sem á að meðhöndla. Meðferðin tekur yfirleitt um hálfa klukkustund, allt eftir umfangi hverju sinni.
Hrukkur á milli augabrúna er eitt algengasta meðferðarsvæðið hjá körlum jafnt sem konum og getur gefið reiðilegt og þreytt útlit. Botoxmeðferð slakar á vöðvum sem draga augabrúnirnar saman og niður og minnkar þannig eða fjarlægir þessar hrukkur. Útkoman verður léttara og úthvíldara yfirbragð.
Fínni hrukkur í enni er oft hægt að fjarlægja með botox meðferð og dýpri hrukkur verða minna áberandi.
Broshrukkur eru aðlaðandi hrukkur sem myndast hliðlægt við augun þegar við brosum. Þegar þessar broshrukkur verða varanlegar gefa þær oft þreytulegt útlit. Með botox meðferð hverfa eða minnka þessar hrukkur og gefa úthvíldara yfirbragð.
Botox meðferð í lyftivöðva efri varar er meðferð sem notuð er við hinu svokallað gómabrosi eða gummy smile. Við þetta lyftist efri vörin ekki jafn mikið upp þegar brosað er og minna tannhold er þá sýnilegt.
Hægt er að lyfta munnvikunum örlítið með botoxmeðferð sem getur gefið glaðari munnsvip.
Ástæðan fyrir hrukkumyndum er fjölþætt. Erfðir, líferni, tóbak og sólarvenjur spila þar stóran þátt. Ein ástæða hrukkumyndunnar er slit sem myndast í dýpri lögum húðarinnar við samdrætti í vöðvum andlitsins. Með botoxmeðferð gefur þú húðinni hvíld til að endurnýja þessa stoðvefi sem halda húðinni unglegri en meðferðin hefur þó sínar takmarkanir. Einstaklingur sem hefur myndað djúpar hrukkur í húðinni hlýtur ekki sama árangur og einstaklingur með fínni húðlínur eða hrukkur. Við mjög djúpum hrukkum getur árangurinn með vöðvaslakandi efnum valdið vonbrigðum. Viðtal og skoðun getur gefið þér raunsæja mynd af því hvaða árangurs er að vænta.
Hægt er að senda okkur skilaboð með því að fylla út formið hér að neðan og við höfum samband við fyrsta tækifæri.
Samskipti kunna að vera vistuð í gagnagrunni okkar. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hér

Hægt er að hafa samband með því að fylla út formið hér að neðan og við svörum þér við fyrsta tækifæri.
Samskipti kunna að vera eru vistuð í gagnagrunni okkar. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hér

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis, pulvinar dapibus leo.
Öll samskipti eru vistuð í gagnagrunni okkar. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hér