Persónuverndarstefna

Þessi persónuverndarstefna er hluti af gæða- og öryggiskerfi Læknahússins Dea Medica ehf. sem hefur að geyma skjalfestar starfsreglur er varða öryggi við vinnslu persónuupplýsinga í Læknahúsinu Dea Medica. Stjórn félagsins hefur samþykkt þessa stefnu og felur framkvæmdastjóra þess að koma henni í framkvæmd í samræmi við upplýsingaöryggisstefnu félagsins.

Læknahúsið Dea Medica er læknastofa þar sem starfað er með viðkvæmar persónuupplýsingar. Persónuverndarstefnan nær til allrar starfsemi félagsins.

Læknahúsið Dea Medica safnar og vinnur með upplýsingar um sjúklinga, starfsmenn og viðskiptavini sem fyrirtækinu er skylt að meðhöndla í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til fyrirtækisins samkvæmt lögum, reglum og samningum. Starfsmenn skuldbinda sig til þess að meðhöndla allar persónulegar upplýsingar á löglegan, ábyrgan og öruggan hátt og gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem slíkri umsýslu fylgir.

Höfuðáhersla er lögð á vernd og öryggi persónuupplýsinga sem miðast fyrst og fremst við að koma í veg fyrir að óviðkomandi aðilar komist í þær og að þær skaðist ekki eða glatist.

Aðgangsstýring skal tryggja það að aðeins þeir sem hafa gilda heimild komist í upplýsingarnar. Öryggisafrit eru tekin af öllum gögnum til að tryggja tiltækileika þeirra.

Læknahúsið Dea Medica miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema skýr heimild þess efnis liggi fyrir.

Gæða- og öryggiskerfi félagsins, þar með talið persónuverndarstefna þessi, skal endurskoða árlega.

Reykjavík, 02.12.2024


Staðfest af stjórn og framkvæmdastjóra