Læknahúsið Dea Medica auglýsir eftir skurðhjúkrunarfræðingi í 80% starfshlutfall við almenn skurðhjúkrunarstörf.
Í boði er áhugavert starf með góðu samstarfsfólki sem byggir aðallega á dagvinnu.
Mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda og mannleg samskipti.
Starfsemi stofunnar er einkum fólgin í lýtalækningum og æðaskurðlækningum.
Á stofunni eru reknar þrjár skurðstofur og tvær aðgerðarstofur fyrir minni aðgerðir.
Frekari upplýsingar um stöðina er að finna á heimasíðu félagsins www.deamedica.is
Umsókn ásamt ferilskrá óskast sent á tölvupóstfangið arna@deamedica.is